09 jan 2008

New York New York

New York er hingað til alveg frábær! Ég og minn mann mættum hingað í gærkvöldi og höfum eytt öllum tímanum með okkar frábæru vinum og gestgjöfum, Auði og Hróa. Þið eruð ÆÐI!!
Föt og skór eru búin að vera efst á á innkaupalistanum og það gengur framar björtustu vonum okkar að finna slíkt. Það er heldur ekki verra að útsölurnar eru í gangi þannig að maður er með enn betri samvisku í innkaupunum :)
Nú á bara að haga sér eins og hinir verstu túristar og skoða það flottasta og borða sem mest af mat á ameríska vísu og smakka á bjórnum þeirra ;)
Meira síðar
XX

30 des 2007

Árið er að verða búið. Látum okkur nú sjá, hvað er búið að gerast?
Ég eyddi 5 fyrstu mánuðum ársins í það að vera ólétt og af þeim sökum var ekki ráðist í nein stórræði. Var bara að skólast í HÍ að reyna að klára rannsóknarverkefni áður em ég yrði léttari,- sem tókst ekki.
Á fimmta mánuðinum urðu prinsessurnar mínar tvær báðar árinu eldri, sem sagt tveggja ára og fimm ára, dagurinn var ekki liðinn þegar farið var að spyrja hvenær næsti afmælisdagur rynni upp.
Á sjötta mánuðinum varð ég loks léttari og eignaðist yndislega fallegan og á allan hátt fullkominn sextán marka dreng.
Sjöundi og áttundi fóru í að dást að yndislegu börnunum mínum á hinum ýmsustu stöðum á landinu.
Sá níundi kom og þá byrjaði í nýjum skóla,-Háskólanum á Hólum að stúdera fiskeldi.
Tíundi og ellefti komu og fóru og ég reyndi af öllum mætti og með mikilli “hjálp” frá litla drengnum mínum að læra eins og þjarkur, bæði í eldinu og í hinu ókláraða rannsóknarverkefni.
Sá tólfti….ég þóttist himinn hafa höndum tekið í skólamálum því að hin yndislega dagmamma sem var líka með miðbarnið mitt ætlaði að taka hann svo ég gæti lært fyrir próf. En þá komu pestir, fyrst hjá mér svo hjá dagmömmunni og svo- komu tennur. En nú eru mánuðirnir ekki fleiri, við byrjum uppá nýtt :)
Einhverstaðar þarna inni á milli fór ég á tvenna tónleika. Þeir fyrri voru með kúlunni, spilarar þess kvölds voru INCUBUS, þeir voru mjög fínir framanaf og kúlukallinn dansaði með taktinum á milli dúra. Seinni tónleikarnir voru með Cris Cornell, SNILLD- er rétta orðið til að lýsa þeim. Þetta eina orð nær að lýsa öllu sem tónleikana snerti. Meira að segja litli kútur var góður í pössun í fyrsta skipti.
Svona eru árin sem maður stendur í útungun, maður gerir ekkert rosalega margt, en það sem maður gerir skiptir því meira máli.
Næsta ár byrjar á upptökuprófi og svo verður haldið til New York!!!!
Þetta er allt gott :)

09 des 2007

hornös

það er versta hugmynd í heiminum að hafa lokapróf í nokkrum hlut í desember!!!
Sérstaklega þegar maður á slatta af krílum sem ná sér í hornös sem breytist í 40 stiga hita sem veldur því að maður nær ekki að sofa og því síður að læra!! hverjum datt þetta í hug??!! Ég er semsagt búin að vera með beina línu í lækni síðustu vikuna, búin að fá lækni heim og er að fara í hópferð á heilsugæsluna á morgun.
Jolly jolly
verð að hætta krílin kalla

13 ágú 2007

Nokkur atriði til að hafa á bakvið eyrað ;)

Ég fann nokkra góða punkta á netinu…

Hvað er að gerast þegar karlmenn…
1. Kyssa konuna ekki nóg
Góður og langur koss er stór hluti af forleiknum. Ef þú ert að flýta þér það mikið að þú gleymir að sinna kossahlutanum er líklegt að þú náir ekki að æsa hana nóg upp.

2. Blása inn í eyrað á konunni
Það er greinilega einhver gróusaga í gangi um að konur elski að láta blása í eyrað á sér. Þetta er lygi. Tunga sem sleikir eyrnasnepilinn blíðlega er aftur á móti allt annað mál!

3. Eru órakaðir
Við getum alveg viðurkennt að órakaðir menn geta verið sexý á götum úti. En prófaðu að nudda sandpappír á innanverð lærin eða á hökuna. Húðin mun sennilega flagna og ekki sérlega þægilegt.

4. Klemma brjóstin á konunni
Við skulum fá það á hreint að konubrjóst eru ekki bolludeig sem á að hnoða, eða melóna sem þarf að þrýsta á til að athuga hvort hún sé orðin nógu þroskuð til að borða. Karlmenn! Farið gætilega með brjóstin á okkur og einbeitið ykkur frekar að geirvörtunum.

5. Bíta í geirvörturnar
Þegar menn sleikja eða sjúga geirvörturnar er það yfirleitt yndislegt. En þegar varnarlausar geirvörturnar verða að naghring er það ekki svo yndislegt lengur.

6. Snúa uppá geirvörturnar
Í guðanna bænum hættið að snúa uppá geirvörturnar á okkur eins og þið séuð að stilla útvarpið í bílnum. Geirvörturnar okkar eru ekki takkar.

7. Gleyma ákveðnum líkamshlutum
Það finnast fleiri líkamshlutar á konum en brjóst og undirstell. T.d. axlir, háls, hryggur og rass.

8. Hjálpa konunni ekki úr fötunum
Ekki bara liggja við hliðina á konunni með hendina niðri í nærbuxunum hennar. Ef að þú virkilega vilt tæla hana, hjálpaðu henni þá úr fötunum.

9. Eiga ekki smokka
Maðurinn kemur með okkur heim. Og klæðir sig í smokk. Svoleiðis er það bara…

10. Ráðast á snípinn
Gjörið svo vel að umgangast snípinn með virðingu. Ekki þrýsta, snúa eða sjúga hann. Reynið frekar að nudda gætilega í kringum snípinn.

11. Taka pásur
Ef að þið takið pásu þýðir það stopp fyrir konur. Þá þurfa mennirnir að byrja frá byrjun. Ef að konan er byrjuð að hitna, haltu þá áfram. Þú getur líka farið þér hægt á meðan þú fullnægir henni. Það gefur bónus á endanum.

12. Klæða konuna úr fötunum í vitlausri röð
Engin kona vill líta asnalega út. Og maður lítur líka asnalega út þegar neðri líkamshlutinn er nakinn en maður er ennþá klæddur í sokka og peysu/bol.

13. Ráðast á sköpin
Neðri kroppur konunnar er meira en eitt gat. Taktu þér tíma áður en þú ræðst á það.

14. Nudda of harkalega
Nudd getur alltaf skapað góða stemmingu. En skildu nuddaðferðina frá nuddaranum þínum eftir heima. Ef að þú gengur of harkalega til verks getur það dregið úr stemmningunni.

15. Vilja fá konuna of fljótt úr fötunum
Ekki rífa hana úr fötunum. Það getur vel verið að Michael Douglas hafi sloppið vel frá því í erótískum spennumyndum sem að hann hefur leikið í. Taktu því rólega. Hún hefur jú lagt sig fram um að líta vel út fyrir þig. Hrósaðu henni fyrir fallegu undirfötin.

16. Fara fyrst úr buxunum
Röðin ætti að vera: bolur, sokkar, og svo buxurnar. Aldrei öfugt! Það er ekkert eins ósexý og karlmaður sem stendur á hvítu tennissokkunum með “vininn” hangandi niður fyrir bolinn. Þetta atriði er ekki hægt að leggja nógu mikla áherslu á!

17. Flýtir sér of mikið
Gefðu henni tíma, ekki flýta þér eins og þú eigir lífið að leysa. Hún mun gefa þér merki um þegar hún vill að þú setjir allt á fullt.

18. Eru of harðhentir í rúminu
Það fær henni til að líða eins og hún sé nýkomin úr tveggja vikna reiðtúr, án hnakks!

19. Koma of fljótt
Þetta er mjög algengt. Margir karlmenn koma of fljótt, og þess vegna er gott að hafa B plan um hvernig þú getur fullnægt henni.

20. Koma of seint
Þetta er nýtt! Þú ert enginn sexgúrú, bara af því að þú getur haldið út í tvo tíma án þess að “koma”. Allt er þreytandi til lengdar.

21. Spyrja hana hvort að hún hafi “komið”
Annað hvort tekur þú eftir því hvort að hún hafi fengið fullnægingu, annars “kom” hún sennilega ekki. Ekki spyrja svona heimskulega.

22. Allt of gætileg munnmök
Þú ert ekki lítill kettlingur sem að lepur mjólkina í þig. Notaðu tunguna! Rúllaðu, víbraðu og gerðu bylgjur með tungunni á snípnum á henni.

23. Þrýsta höfði konunnar niður við munnmök
Nei konum líkar alls ekki að láta þrýsta höfðinu á sér niður að getnaðarlim mannsins. Já, þetta er gert í klámmyndunum og nei þetta “fílum” við alls ekki í raunveruleikanum.

24. “Koma” í munn konunnar
Sæði er á bragðið eins og saltvatn, blandað með eggjahvítu. Það eru ekki allar konur sem að líkar þetta bragð. Segðu til svo að hún nái að forða sér áður en þú “færð það” upp í hana.

25. Hreyfa sig órólega
Þegar hún “tottar” hann á þér, liggðu kyrr. Hún mun sjá um allar nauðsynlegar hreyfingar.

26. Líkja eftir klámmynd
Klámmyndir eru skemmtun en ekki námskeið í kynlífi. Konur eru í raunveruleikanum ekki eins og þær sem að leika í þessum myndum. Þú þarft ekki að glenna lappirnar á henni svakalega út. Það þarf nefnilega ekki að vera pláss fyrir heilt tökulið í klofinu á henni.

27. Láta konuna vinna alla vinnuna
Að láta hana sitja ofan á er mjög gott. En ekki í marga klukkutíma. Skiptist á að gera gott við hvort annað, og breytið um stellingar.

28. Spyrja konuna EKKI á undan hvort að hún vilji stunda endaþarmsmök
Ein af þessum slæmu! Ef að þig langar til að stunda endaþarmsmök spurðu hana þá fyrst. Það getur vel verið að hún segi já. Þú mátt ekki bara gera ráð fyrir að hún vilji það. Og að segja að þú hafir óvart villst í vitlaust gat, er bara út í hött að segja!

29. Taka einkamyndir
Þegar þú spyrð: má ég taka nektarmyndir af þér? Heyrir hún þig segja: sem ég get sýnt vinum mínum eða setja þær á internetið. Láttu hana fá myndirnar og svo getið þið kíkt á þær saman.

30. Eru of hugmyndasnauðir
Þessar sömu tvær stellingar geta orðið leiðinlegar. Reyndu eitthvað nýtt!

31. Eru oft tæknilegir
Kama Sutra, tantrasex o.s.frv. Ef að hún vill stunda jóga hefði hún sennilega farið á námskeið.

32. Gefa konunni sogblett
Ertu 12 ára gamall? Allir sem svara þessari spurningu neitandi hætta að gefa sogbletti á stundinni!

33. Tala “dirty” í rúminu
Sumum líkar að láta tala “dirty” við sig í rúminu, öðrum líkar það ekki. Spurðu hana hvort að hún “fíli” það.

34. Gefa skipanir
Það er hægt að gera á margan hátt. Hún er hvorki hundur né hermaður…

35. Halda að allt sé yfirstaðið þegar hann er búinn að “koma”
Sýningunni er ekki lokið fyrr er allir eru fullnægðir. Það er ekkert verra en menn, sem halda að samræðinu sé lokið, bara af því að þeir eru fullnægðir.

36. Þrýsta öllu lofti út úr henni
Mundu að það eru miklar líkur á því að þú sért mun þyngri en hún. Ef þú liggur lengi ofan á henni getur andlitsliturinn hennar orðið bláleitur.

37. Þakka fyrir sig eftir kynlíf
Hún stundar kynlíf af því að henni langar til þess ekki til að þjónusta þig!

12 ágú 2007

Í dag

Er síðasti dagur aðgerðalysis hjá mér (í bili).
Á morgun fer ég að vinna á fullu í fjórða árs verkefninu mínu- seinna má það varla vera!! Eins og örfáir vita þá var ég dálítið ólétt í lok síðustu annar og um leið og hinn hefðbundni prófatími var úti var eins og það legðist yfir mig svefndrungi. Með öðrum orðum þá svaf ég allan daginn og alla nóttina, ef ég mögulega komst upp með það, síðustu 2-3 vikurnar áður en litli prinsinn minn fæddist. Síðan þá hef ég verið dálítið upptekin með hann og stóru, yndislegu systur hans sem eru búnar að vera í löngu sumarfríi. Við erum öll búin að hafa rosalega gott af fríinu saman. Urður Ósk fékk mikinn orðaforða af því að umgangast bara fullorðið fólk, Perla Rós er búin að sanna sig sem feykigóð barnfóstra (undir eftirliti náttúrulega) og þær báðar búnar að finna að þær hafa ennþá sinn sess í fjölskyldunni, þótt að það sé kominn einn meðlimur í viðbót.
Allavega þá eru þær báðar farnar aftur á “sína” staði eftir fríið, Perla Rós á leikskólann og Urður Ósk til dagmömmunnar sinnar. Sem þýðir að nú hef ég tíma til að læra. Ef ég set allt í botn og Arnaldur verður duglegur að sofa, þá ætti þetta að ganga vel. Ég þarf bara að setja mig í startholurnar og stilla heilann aftur inná eitthvað annað en barnauppeldi og kúkableyjur.

En í dag,- ætla ég bara að njóta þess að vera til í góða veðrinu :)

30 maí 2007

framkvæmdir

Hvað heitir það þegar maður gerir ekkert í því sem maður á að vera að gera, en fullt í því sem má bíða??
Leti…
Hugsunarleysi…
Vitlaus forgangsröðun…
Allavega, hvað sem það er þá er ég rosalega góð í því þessa dagana. Mér er búið að takast að fá mér þjófavarnarkerfi í íbúðina mína, mála garðhúsgögnin, skrá okkur hjónin í FÍB, fá mér nýtt skrifborð og halda afmælisveislur. Ásamt því sem að ég er rosalega dugleg að sofa. Alveg sama hvort ég sef vel eða illa um nóttina, það er eins og ég sé undir áhrifum svefnlyfja, mig langar bara að sofa! Annars má kannski kenna því um að ég er alveg á steypinum. Er sett á morgun. Ég vona bara að það fari eitthvað að gerast, ég er orðin dálítið þreytt á því að vera ófrísk,- það bara hentar mér ekki. Þyngdin, hormónarnir, að þurfa að taka öllum hlutum rólega, vera alltaf pissandi, þreyta og svo framvegis. Af hverju ættleiðir maður bara ekki?? Annars eru stelpurnar mínar fullkomnar að mínu mati, og ég á ekki vona á því að mér finnist nokkuð annað um soninn sem er á leiðinni. Ein af ástæðunum fyrir því að ég er ólétt í þriðja skiptið er víst sú að leiðinlegu partarnir gleymast um leið og maður fær krílið í hendurnar og verður samstundis ástfanginn :D
Það sem ég á að vera að gera er að skrifa ritgerð fyrir diplómagráðuna mína!!! En ætli ég réttlæti ekki framkvæmdaleysi mitt í henni með því að ég geti skrifað þegar krílið er mætt í heiminn, en ekki staðið í reddingum. En þegar öllu er á botninn hvolft, þá getur maður alltaf fundið sér afsakanir! Þannig er nú lífið.

10 maí 2007

gengur eins og smurt…

Ég á eftir að gera 10 milljón hluti!!! En það er allt í lagi, þar sem að ég ætla að vera trú þeirri áætlun minni að hafa ekki áhyggjur :)  Litli gaurinn fer örugglega að láta sjá sig fljótlega og þangað til verð ég upptekin við þetta blessaða lokaverkefni mitt.  Ef ég næ ekki að gera eins mikið og ég ætlaði mér,- þá verður bara að hafa það…

Annars er smiðurinn mættur til að klára pallinn úti og leggja gólflistana inni hjá mér :) Sko, hlutirnir hafa lag á að gerast af sjálfu sér!!

Mér finnst það bara ekkert leiðinlegt :D

05 maí 2007

tíhíhí….

Hei… ég var búin að skrifa eitthvað svaka sniðugt blogg hér, en nú er það horfið!

En svo maður horfi á björtu hliðarnar þá getur enginn sagt að það hafi ekki verið sniðugt, þar sem að það getur enginn lesið það hehehe.

Ég hef reyndar heyrt það oftar en einu sinni að á skalanum að vera fyndinn og sorglega lítið svo, þá sé ég frekar á sorglega endanum. Það er nú reyndar allt í lagi að mínu mati, ég get brosað að mínum eigin bröndurum ;)

Svo er ég líka að búa til minn eigin áhorfendaskara, sem að telur nú 2 og bráðum 3 áheyrendur.  Þangað til að þetta litla fólk mitt kemst til fleiri ára og meira vits, þá finnst þeim mamma sín alveg sniðug.  Ég verð bara að nýta mér það á meðan ég get :D

29 apr 2007

prófadót

Fyrsta og síðasta prófið á morgun. Það er að segja á þessari önn.

Ef ég hinsvegar ákveð að fara beint í master þá þarf ég sennilega ekki að taka nein próf næstu árin (eftir að fæðingarorlofinu lýkur). En ég er hreint ekki viss um að master í því að horfa á afturendann á hvölum sé mjög gefandi…

Finnst eiginlega meira spennandi að læra að ala upp lítil fiskabörn og búa til peninga. En þá kemur á móti að próflestur verður aftur að föstum lið tvisvar á ári.

Spennandi leiðin eða auðvelda leiðin??

Þegar ég set þetta svona upp þá er í rauninni bara um eitt að velja.

Eins og sannur nörd hlýt ég að líta framhjá auðveldu leiðinni ;)

26 apr 2007

Áhyggjur,-vitleysingar og á döfinni

Ég er að hugsa um að hætta að hafa áhyggjur.  Því meira sem ég pæli í þessari yfirvofandi ákvörðun, því ánægðari verð ég með hana.  Í fyrsta lagi þá græðir maður ekki nokkurn skapaðan hlut á því að hafa áhyggjur af orðnum hlutum (maður breytir ekki því sem er liðið).  Í öðru lagi þarf maður ekki að hafa áhyggjur ef maður sýnir bara nógu mikla fyrirhyggjusemi og í þriðja lagi…. þá borgar það sig ekki velta sér uppúr einhverju sem maður getur hvort sem er ekki haft áhrif á eins og stríð í útlöndum eða olíuslys á Reykjanesinu.

Það eru einhverjir “snillingar” sem munu alltaf koma til með að búa til vandamál í tilraunum sínum til að fækka þeim,- en ég er ekki í aðstöðu til að halda í hendina á þeim, og mér sýnist sem svo að það sé enginn með fullu viti sem er að gera það heldur (Dæmi: George Bush og co).

Á öðrum nótum, þá er ég ennþá með kúlu framaná mér, litli gaurinn er sem betur fer ekki ennþá farinn að reyna að komast út.  Til alllrar lukku því að ég þarf að mæta í lokapróf á mánudaginn og eftir það þarf ég að vinna eins og vitleysingur að diploma ritgerðinni minni, eins lengi og litli kall leyfir mér :)

Annars er ég farin að hlakka heil ósköp til að sjá hann…  (væri samt alveg til í að sleppa fæðingunni sjálfri).