30 maí 2007

framkvæmdir

Hvað heitir það þegar maður gerir ekkert í því sem maður á að vera að gera, en fullt í því sem má bíða??
Leti…
Hugsunarleysi…
Vitlaus forgangsröðun…
Allavega, hvað sem það er þá er ég rosalega góð í því þessa dagana. Mér er búið að takast að fá mér þjófavarnarkerfi í íbúðina mína, mála garðhúsgögnin, skrá okkur hjónin […]

Continue reading "framkvæmdir" »

08 feb 2006

bólur líðandi stundar

Aumingja Perla Rós er búin að vera með hlaupabólu. Litla ljósið mitt. En hún er búin að vera rosalega hugrökk og klóraði sér eiginlega ekkert (bara í svefni). Annars er ég bara að bíða eftir því að Urður Ósk fái hana líka. Þá er það allavega búið. Annars var Perla […]

Continue reading "bólur líðandi stundar" »

02 jan 2006

Það er Ekki guð, það er eitthvað annað

Það sem ég er svo innilega ánægð með að sé í lífinu mínu er:
Ást; á pabba og mömmu og hinni stórfenglegu litlu systur minni, allri stórfjölskyldunni eins og hún leggur sig, öllum vinum mínum og fjölskyldum þeirra fyrir að gera þá að því stórkostlega fólki sem það er, ást minni á mat sem er sérlega […]

Continue reading "Það er Ekki guð, það er eitthvað annað" »

27 des 2005

Það er leikur að læra

Mig langar að þakka öllum fyrir þetta mikla jólagjafafjall sem rigndi yfir mig og mína fjölskyldu þessi jólin. Held bara að ég hafi aldrei séð annað eins. Ég, eins og dætur mínar, er orðin spillt á eftirlæti og ofáti. Leyfði Perlu Rós meira að segja að fá súkkulsðifrómas á jóladag eftir matinn. […]

Continue reading "Það er leikur að læra" »

18 des 2005

Af hryllingi og ánægju..

Mér finnst kallinn minn svo sætur… Hann er svo mikið sápufan. O.C. ,One tree hill og svo framvegis. Persónulega finnst mér þetta í sama flokkinum og guiding light. Ef ég sé einn þátt á svona 2ja mánaða fresti þá er ég alveg með plottið á hreinu. Minir uppáhaldsþættir eru […]

Continue reading "Af hryllingi og ánægju.." »

19 nóv 2005

Hreysti handa spriklurum

Urður Ósk fór í fyrsta sinn í sund í dag, duglega stelpan var hæstánægð með þetta svaml og framhald verður örugglega gert á þessari iðju. Perla Rós stóra systir var auðvitað með og var í stífum sundæfingum. Ekki svo kannski, nema það sé stíft að svamla með 2 kúta og frauðbretti sé […]

Continue reading "Hreysti handa spriklurum" »

14 nóv 2005

Ég er nörd

Ekki tölvunörd samt, sem kannski sannast best á því hversu “dugleg” ég er að skrifa á þess síðu. Nei, ég er nörd í stígvélum, ullarpeysu, með gleraugu og sultardropa á nefinu!!! Það er ég, mig langar nefninlega að vera “stígvélalíffræðingur”. Það er að segja sú sem fer útí móa eða ofaní skurð að sækja […]

Continue reading "Ég er nörd" »

08 ágú 2005

kviksyndi

Svaðilfarir geta oft verið skemmtilegar, áhuganverðar og spennandi. Það jaðrar þó við að vera verra þegar manns eigin hlutir eru í hættu á að skemmast. Þannig er mál með vexti að ég og mín nánasta familía fórum á rúntinn. Það er ekki í frásögur færandi nema að því leyti að bíllinn endaði […]

Continue reading "kviksyndi" »

12 júl 2005

Það er aldrei eitt…

Ég hélt að ég hefði himinn höndum tekið þegar ég fór að hugsa útí bílana mína. Ég gat bara ekki fundið neitt að þeim fyrir utan nauðsynleg ljósaperuskipti. Engar alvarlegar bilanir, svona til tilbreytingar. Þá byrjaði það, það byrjaði með því að ljósaperurnar fóru að springa í loftljósunum hjá mér ein af […]

Continue reading "Það er aldrei eitt…" »

17 maí 2005

Urður Ósk Árnadóttir

Hún er mætt!!!!!! Litla prinsessan mín er loksins mætt í heiminn. Það gekk allt rosalega vel í fæðingunni, allavega finnst mér það eftirá. Þegar ég var komin með 8cm útvíkkun og var að fara að ýta þá velti ég því fyrir mér af hverju ég hefði látið hafa mig útí þetta aftur. […]

Continue reading "Urður Ósk Árnadóttir" »