Áhyggjur,-vitleysingar og á döfinni

Ég er að hugsa um að hætta að hafa áhyggjur.  Því meira sem ég pæli í þessari yfirvofandi ákvörðun, því ánægðari verð ég með hana.  Í fyrsta lagi þá græðir maður ekki nokkurn skapaðan hlut á því að hafa áhyggjur af orðnum hlutum (maður breytir ekki því sem er liðið).  Í öðru lagi þarf maður ekki að hafa áhyggjur ef maður sýnir bara nógu mikla fyrirhyggjusemi og í þriðja lagi…. þá borgar það sig ekki velta sér uppúr einhverju sem maður getur hvort sem er ekki haft áhrif á eins og stríð í útlöndum eða olíuslys á Reykjanesinu.

Það eru einhverjir “snillingar” sem munu alltaf koma til með að búa til vandamál í tilraunum sínum til að fækka þeim,- en ég er ekki í aðstöðu til að halda í hendina á þeim, og mér sýnist sem svo að það sé enginn með fullu viti sem er að gera það heldur (Dæmi: George Bush og co).

Á öðrum nótum, þá er ég ennþá með kúlu framaná mér, litli gaurinn er sem betur fer ekki ennþá farinn að reyna að komast út.  Til alllrar lukku því að ég þarf að mæta í lokapróf á mánudaginn og eftir það þarf ég að vinna eins og vitleysingur að diploma ritgerðinni minni, eins lengi og litli kall leyfir mér :)

Annars er ég farin að hlakka heil ósköp til að sjá hann…  (væri samt alveg til í að sleppa fæðingunni sjálfri).

This entry was posted on 262139H apr 2007 and is filed under Óflokkað. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

-->

5 álit á “Áhyggjur,-vitleysingar og á döfinni”

  1. Erna Karen Segir:

    Hæ Drífan mín, mér líst svaðalega vel á þá ákvörðun þína að hætta að hafa áhyggjur - er að pæla í að gera hið sama - þá verður við bara endalaust áhyggjulausar með kaffibolla í Öskjunni - þú með kúlukallinn og ég með hámýsútreikninga i tölvunni ;)

    Kv. Erna Karen

  2. Karl Jóhann Segir:

    Hmmm… og hver er þessi “yfirvofandi ákvörðun”?

  3. Drífa Segir:

    Að hætta að hafa áhyggjur :)

  4. Karl Jóhann Segir:

    Ó, en það má samt lesa þetta á þann hátt að þú værir að hafa áhyggjur af einhverju og ætlaðir að hætta að hafa áhyggjur af því…eða kannski er ég bara svona dramatískur!

  5. Drífu Segir:

    Svona gerist víst þegar maður er að skrifa niður það sem maður er að hugsa, það er kannski ekki alveg ljóst hvað maður er að reyna að segja ;)

Skildu eftir álit