prófadót
Fyrsta og síðasta prófið á morgun. Það er að segja á þessari önn.
Ef ég hinsvegar ákveð að fara beint í master þá þarf ég sennilega ekki að taka nein próf næstu árin (eftir að fæðingarorlofinu lýkur). En ég er hreint ekki viss um að master í því að horfa á afturendann á hvölum sé mjög gefandi…
Finnst eiginlega meira spennandi að læra að ala upp lítil fiskabörn og búa til peninga. En þá kemur á móti að próflestur verður aftur að föstum lið tvisvar á ári.
Spennandi leiðin eða auðvelda leiðin??
Þegar ég set þetta svona upp þá er í rauninni bara um eitt að velja.
Eins og sannur nörd hlýt ég að líta framhjá auðveldu leiðinni ![]()


