framkvæmdir

Hvað heitir það þegar maður gerir ekkert í því sem maður á að vera að gera, en fullt í því sem má bíða??
Leti…
Hugsunarleysi…
Vitlaus forgangsröðun…
Allavega, hvað sem það er þá er ég rosalega góð í því þessa dagana. Mér er búið að takast að fá mér þjófavarnarkerfi í íbúðina mína, mála garðhúsgögnin, skrá okkur hjónin í FÍB, fá mér nýtt skrifborð og halda afmælisveislur. Ásamt því sem að ég er rosalega dugleg að sofa. Alveg sama hvort ég sef vel eða illa um nóttina, það er eins og ég sé undir áhrifum svefnlyfja, mig langar bara að sofa! Annars má kannski kenna því um að ég er alveg á steypinum. Er sett á morgun. Ég vona bara að það fari eitthvað að gerast, ég er orðin dálítið þreytt á því að vera ófrísk,- það bara hentar mér ekki. Þyngdin, hormónarnir, að þurfa að taka öllum hlutum rólega, vera alltaf pissandi, þreyta og svo framvegis. Af hverju ættleiðir maður bara ekki?? Annars eru stelpurnar mínar fullkomnar að mínu mati, og ég á ekki vona á því að mér finnist nokkuð annað um soninn sem er á leiðinni. Ein af ástæðunum fyrir því að ég er ólétt í þriðja skiptið er víst sú að leiðinlegu partarnir gleymast um leið og maður fær krílið í hendurnar og verður samstundis ástfanginn :D
Það sem ég á að vera að gera er að skrifa ritgerð fyrir diplómagráðuna mína!!! En ætli ég réttlæti ekki framkvæmdaleysi mitt í henni með því að ég geti skrifað þegar krílið er mætt í heiminn, en ekki staðið í reddingum. En þegar öllu er á botninn hvolft, þá getur maður alltaf fundið sér afsakanir! Þannig er nú lífið.

This entry was posted on 301115H maí 2007 and is filed under Daglegt líf, Fjölskyldan. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

-->

6 álit á “framkvæmdir”

  1. Telma Segir:

    Jey búin að breyta um útlit, skemmtilegt:) Og jey, í dag er settur dagur, magnað! Vá samt hvað þú ert dugleg að framkvæma verandi kasólétt, ég er ekki einu sinni svona dugleg, og ekki er ég með barn í maganum.

    Hvíldu þig nú vel frú verðandi 3 barna móðir, ég hugsa til ykkar:D

  2. Erna Karen Segir:

    Hæ skvísa,
    Já er strákurinn ekkert á leiðinni í heiminn?
    Við í Öskjunni bíðum svakalega spenntar ;)

    Bið að heilsa í Álfkonuhvarfið.

  3. Hulda Segir:

    Til lukku Drífa mér var sagt að það hefði verið kominn timi til (þú klikkaðir reyndar á mánuði) þú hefðir verið svooooo ólétt:-)Arnaldur er fjallmyndarlegur drengur gangi ykkur vel.

  4. Perla Segir:

    heyrðu, er komið beibí??? ég bíð spennt eftir fréttum:) knús mús og láttu heyra í þér… leitt að hafa ekki komist í ammælið hjá skvísunum um daginn!!! En þú fékkst Auði, Hróa og Martin í staðin:) lov jú og góða lukku með allt

  5. Sif Segir:

    Halló, ég klukkaði þig, átt að skrifa 8 atriði um þig og svo máttu klukka átta aðra.

  6. LONNIE Segir:

    < blockquote >< a href=”http://pillspot.org/”>PillSpot.org. Canadian Health&Care.Special Internet Prices.Best quality drugs.No prescription online pharmacy. High quality pills. Order pills online< /a >…

    Buy:Lasix.SleepWell.Lipothin.Cozaar.Benicar.Seroquel.Buspar.Amoxicillin.Ventolin.Nymphomax.Zocor.Prozac.Female Pink Viagra.Female Cialis.Zetia.Aricept.Lipitor.Wellbutrin SR.Advair.Acomplia….

Skildu eftir álit