Í dag

Er síðasti dagur aðgerðalysis hjá mér (í bili).
Á morgun fer ég að vinna á fullu í fjórða árs verkefninu mínu- seinna má það varla vera!! Eins og örfáir vita þá var ég dálítið ólétt í lok síðustu annar og um leið og hinn hefðbundni prófatími var úti var eins og það legðist yfir mig svefndrungi. Með öðrum orðum þá svaf ég allan daginn og alla nóttina, ef ég mögulega komst upp með það, síðustu 2-3 vikurnar áður en litli prinsinn minn fæddist. Síðan þá hef ég verið dálítið upptekin með hann og stóru, yndislegu systur hans sem eru búnar að vera í löngu sumarfríi. Við erum öll búin að hafa rosalega gott af fríinu saman. Urður Ósk fékk mikinn orðaforða af því að umgangast bara fullorðið fólk, Perla Rós er búin að sanna sig sem feykigóð barnfóstra (undir eftirliti náttúrulega) og þær báðar búnar að finna að þær hafa ennþá sinn sess í fjölskyldunni, þótt að það sé kominn einn meðlimur í viðbót.
Allavega þá eru þær báðar farnar aftur á “sína” staði eftir fríið, Perla Rós á leikskólann og Urður Ósk til dagmömmunnar sinnar. Sem þýðir að nú hef ég tíma til að læra. Ef ég set allt í botn og Arnaldur verður duglegur að sofa, þá ætti þetta að ganga vel. Ég þarf bara að setja mig í startholurnar og stilla heilann aftur inná eitthvað annað en barnauppeldi og kúkableyjur.

En í dag,- ætla ég bara að njóta þess að vera til í góða veðrinu :)

This entry was posted on 121401H ágú 2007 and is filed under Óflokkað. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

-->

Eitt álit á “Í dag”

  1. Sif Segir:

    Yndislegust, ef einhver getur þetta þá ert það þú!

    Við verðum að hittast aftur sem fyrst!! Lovjú!

    S

Skildu eftir álit