06 apr 2007
Í dag er hinn langi föstudagur sem kemur upp á hverju ári og á að vera til að hengja haus yfir því að jesús kristur hafi dáið í dag fyrir tæpum 2000 árum síðan. Vegna þessa er allt lokað, allir eiga að sitja með tásurnar uppí loft og éta einungis hvítt kjöt. Hjá mér og minni fjölskyldu hefur það þó tíðkast að þessi dagur sé dagur þeirra framkvæmda sem hafa setið á hakanum í lengir tíma. Gott dæmi um slíkt er geymslutiltekt. Hér á mínu eigin heimili og hjá tengdó er búið að vera að moka útúr geymslum með stórvirkum vinnuvélum í dag og loksins í dag fór ég í að hengja upp hilustoðir sem voru keyptar fyrir tæpu ári síðan. Eitthvað var þó litli bumbubúinn óánægður með þessar framkvæmdir því að þegar borinn var mundaður fór kúlan öll í keng. Áframhaldandi framkvæmdir bíða því til betri tíma (á morgun). Svo veit ég að mínir afskaplega framkvæmdaglöðu foreldar eru að henda upp einu húsi í sveitasælunni, þau eru ótrúleg
.
Hver er annars tilgangurinn með skírdegi? Hér með auglýsi ég eftir svari við þeirri spuringu. Mér finnst alveg gott og blessað að fólki fái frídag á þessum án efa merka degi en ég hef bara ekki hugmynd um af hverju það er.
Bloggað af Drífu klukkan 23:31
Flokkur: Óflokkað
16 jan 2007
Algjör snilld!! ég fór í mæðraskoðun í dag og hún bannaði mér að ryksuga og skúra
Nú verður manninn minn að gera það, og mér finnst ekkert leiðinlegt að sleppa við það hehehe
Bloggað af Drífu klukkan 11:35
Flokkur: Óflokkað
19 des 2006
.. ætla ég að vera fyrirmyndarhúsfrú. Þarf maður ekki að prófa það svona einstaka sinnum, það er að segja um leið og ég er búin að fá nóg af því að gera ekki neitt og leggja mig og njóta þess að þurfa ekki að læra
Svo taka jólahreingerningarnar við,- ekki svo að skilja að ég rífi allt útúr skápum og skúffum og ryksugi loftið, en svona það sem ég sé verður tekið fyrir!
Svo verður kvöldið tekið í smáköku og piparkökuhússbakstur, það verður eitthvað að vera til þess að það hætti að vera hreint eftir tiltektina… Ekki eins og það gerist af sjálfu sér,- eða hvað??
Bloggað af Drífu klukkan 9:54
Flokkur: Óflokkað
17 des 2006
Á morgun er síðasta prófið mitt!!! ég verð búin á hádegi
Ekki nema 14 tímar þangað til, það er kannski spurnig um að hætta að læra og bulla á bloggið og fara heim að sofa?
Á maður ekki alltaf að vera svo vel sofinn og ferskur í prófum að maður lýsi upp herbergið?
Bloggað af Drífu klukkan 21:54
Flokkur: Óflokkað
12 des 2006
Ég er héðan í frá hætt þessari leti. Nú er komið nýtt hljóð í skrokkinn. Nú verður þetta síðara próf mitt tekið með trompi og stefnt á að fá 10. Ég skal og mun fá góða einkunn og læra eins og… ég veit ekki alveg hvað, en læra skal ég.
Og hananú,- eitt stykki spark í minn eigin afturenda!!!!!

Bloggað af Drífu klukkan 11:42
Flokkur: Óflokkað
04 des 2006
Ég er að fara í lokapróf ekki á morgun, heldur hinn. Ég er uppi á bókasafni að læra en ég bara nenni ekki að vera hér lengur,-klukkan fer að verða 10 um kvöld! Gallinn er sá að ég veit að ég næ prófinu án þess að lesa nokkuð fleira, en ég vil fá góða einkunn, og munurinn á að ná og fá góða einkunn er ansi mikill.
AAAARRRRRG!
Bloggað af Drífu klukkan 21:47
Flokkur: Skóli
30 nóv 2006
Allir eru að eignast börn. Persónulega þá finnst mér það frábært því að ekkert sem ég hef gert og upplifað um ævina er eins ótrúleg upplifun eins og það.
Hér með óska ég öllum óléttum konum til hamingju og að sjálfsögðu líka þeim sem eiga börn fyrir, ekki má heldur gleyma feðrunum, börnin eru jú víst yfirleitt ekki eingetin,- það var nú reyndar eitt dæmi fyrir um 2000 árum þar sem það var eitthvað að vefjast fyrir fólki hvort að kona gæti ein búið til kríli.
Allavega þá er krílið mitt sem er á leiðinni ekki eingetið, Árni hjálpaði til 
Bloggað af Drífu klukkan 21:39
Flokkur: Óflokkað
11 okt 2006
…duglegri að hringja í og hitta vini mína,- duglegri að læra,- duglegri að leika við stelpurnar mína,- hamingjusöm,- bjartsýn og almennt að taka lífinu með brosi á vör, ég held að þetta sé allt saman auðveldara þannig. Allavega virðast rannsóknir sýna fram á að þeir sem brosa lifi lengur, þal. hafa þeir lengri tíma til að njóta lífsins, ef það er ekki til eftirbreytini þá veit ég ekki hvað er það.
Bloggað af Drífu klukkan 9:52
Flokkur: Óflokkað